Sælgætispökkun 2022 !

Sælgætispökkun 2022 !


Okkar árlega pökkun á jólasælgæti fór fram fimmtudaginn 24 nóvember, og var þetta sérstaklega ánægulegt því gamla góða formið var tekið upp aftur eftir tvö mögur ár vegna Covid ástandsins og þar af leiðandi samkomutakmarkanir. Að venju var raðað upp í línu eins og á verkstæði jólasveinsins og krakkar og fullorðnir raða í öskjurnar sem síðan eru settar í kassa og ekki tekur þetta langan tíma hjá okkur, því pakkað er ca 1500 öskjum á

innan við klukkutíma.
Við þökkum öllum sem komu að þessu bæði félögum og gestum, börnum og barnabörnum. Sala sælgætisins hefst síðan föstudaginn 25 nóvember og stendur í viku tíma alla vega.

TS.