Félagsmálafundur var haldinn hjá okkur Helgafellsfélögum fimmtudaginn 26 mars s.l
Þetta var gagnlegur fundur þar sem tekin voru fyrir nokkur mál sem liggja fyrir í
sambandi við klúbbinn og húsið okkar, ásamt undirbúningi fyrir þingið í september
en það er nóg að snúast í þeim málum.
Við venjuleg fundarstörf eins og lestur afmælisdaga var Óttar Gunnlaugsson félagi okkar
kallaður upp en hann varð fimmtugur á dögunum og fékk því afhenta fánastöngina góðu
í tilefni af þessum merku tímamótum, og óskum við Óttari og fjölskyldu til hamingju
með þennann merka áfanga.
© Smartmedia 2014