Helgafell gefur öryggis- símkerfi

Helgafell gefur öryggis- símkerfi


Í dag við vígslu útisvæðis við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja afhenti forseti Helgafells Einar Friðþjófsson
Íþróttamiðstöðinni öryggissímkerfi til notkunar fyrir starfsmenn hússins, en þetta kerfi byggist upp á
arbandssímum sem hver starfsmaður hefur, og ef slys ber að höndum er hægt að kalla aðra starfsmenn á staðinn
og eins er hægt að hringja beint í 112 ef með þarf. Það var Arnsteinn Jóhannesson forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar
sem veitti gjöfinni viðtöku að viðstöddum fjölda gesta og bað fyrir þakklæti til Helgafellsfélaga fyrir
höfðinglega gjöf.