Ræðumenn hjá Helgafelli

Ræðumenn hjá Helgafelli


S.l miðvikudag var almennur fundur hjá okur Helgafellsfélögum. Fundurinn hófst kl 19.30 á
venjulegum fundarstörfum og borðhaldi að því var komið að ræðumönnum kvöldsins en þeir voru
Jón Ólafur Daníelsson og Heimir Hallgrímsson þjálfarar meistaraflokks kvenna og karla í knattspyrnu hjá ÍBV.

 
Þeir gerðu grein fyrir markmiðum sumarsinns, leikmannamálum og öllum þeim samvirkandi þáttum sem verða að vera í lagi til þess að árangur náist. Þetta var gott erindi hjá þeim félögum og einnig
svöruðu þeir fjölda spurninga úr sal frá áhugasömum félögum.
Í lokin þakkaði Einar Friðþjófsson forseti þeim fyrir gott erindi og færði þeim félögum smá
þakklætisvott frá klúbbnum.
 
Jón Ólafur Daníelsson þjálfari m.fl kvenna í knattspyrnu ÍBV
 
Heimir Hallgrímsson þjálfari m.fl karla í knattspyrnu ÍBV