Skreyting Nausthamars

Skreyting Nausthamars


Í gærkvöldi komu félagar saman niður í Kiwanishús til að skreyta og koma húsinu okkar í jólabúning fyrir jólafundin okkar annað kvöld, sem eins og undanfarin ár er sameiginlegur með Sinawik. Húsið verður opnað kl 19.30 og hefst fundurinn síðan stundvíslega kl 20.00.
Sinawikkonur munu sjá um matseldina og framreiða fyrir okkur glæsilegt jólahlaðborð, og síðan verða fastir póstar í dagskrá kvöldsins sem endar á hinu sívinsæla Bingói.