Skreyting á Hraunbúðum

Skreyting á Hraunbúðum


Í kvöld mættu félagar ásamt nokkurum aðstoðarmönnum á Hraunbúðir Dvalarheimili aldraðra hér í Eyjum og tilgangur heimsóknarinnar var að koma heimilinu í jólabúning eins og við félagar höfum gert í áratugi.
Þetta er  alltaf jafn gefandi fyrir okkur að geta glatt heimilisfólkið með því að koma upp jólaskrautinu og einnig mætum við ávalt á aðfangadagsmorgun á Hraunbúðir.
Að loknu verki var boðið upp á kaffi og súkkulaði ásamt meðlæti og fóru menn ánægðir heim að góðu verki loknu.
 
Myndir frá skreytingu á myndasíðu eða klikka hér