Landsmótið verður að þessu sinni haldið á Gufudalsvelli í Hveragerði og hefst kl. 10 f. h. Leikfyrirkomulag er punktakeppni og leiknar verða 18 holur. Einnig verður keppt án forgjafar í karlaflokki.
Flokkar skiptast þannig: 1. Karlar án forgjafar 2. Karlar með forgjöf 3. Konur með forgjöf 4. Gestaflokkur með forgjöf Nándarverðlaun verða veitt fyrir allar par 3 brautir, verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á braut og fæst pútt samtals. Einnig verða verðlaun í sveitakeppni. Sami einstaklingur getur ekki unnið verðlaun bæði með og án forgjafar. Karlar leika af gulum teigum og konur af rauðum. Í gildi eru staðarreglur varðandi leik almennt. Mótsgjaldið er kr. 3,800,- innifalið er vallargjald ásamt súpu og brauði að leik loknum. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Þórðar Einarssonar í síma 8970169 eða netfang deinars@simnet.is Nauðsynlegt er að skila farandverðlaunagripum til nefndarinnar. Vonumst til að sjá sem flesta Kiwanismenn og gesti þeirra í Hveragerði 15.júní n.k. f.h. undirbúningsnefndar, Þórður Einarsson.