Kótilettufundur hjá Helgafelli !

Kótilettufundur hjá Helgafelli !


 Í gærkvöldi var haldinn sérstakur Kótilettufundur hjá okkur Helgafellsfélögum, en forseti okkar Jóhann  Ólafur Guðmundsson ákvað að taka upp þennann fund til að heiðra stofnfélaga okkar en hér á árum áður voru þessi r félagar kallaðir Kótilettukarlarnir, og kemur það til vegna þess að á fyrstu árum Helgafells þá var fundað á Hótel Hamri

og þegar kokkurinn spurði félagana hvað þeir vildu fá að borða á næsta fundi var svarið ávalt, er ekki tilvalið að hafa bara Kótilettur. Þessi fundur var almennur og því var nokkur fjöldi gesta.