Kári Þorleifsson 50 ára.

Kári Þorleifsson 50 ára.


Þann 17 nóvember s.l varð félagi okkar Kári Þorleifsson 50 ára og að venju gaf klúbburinn okkar honum afmælisgjöf, en það hefur verið siður hjá Helgafelli að gefa félögum forláta fánastöng, áletraða í afmælisgjöf.
Þetta er góður siður að heiðra félaga á þessum merku tímamótum í þeirra lífi og óskum við Kára og fjölskyldu til hamingju með þennann merka áfanga. Það var síðan forseti og frændi Kára, Hafsteinn Gunnarsson forseti Helgafells sem afhenti gjöfina á félagsmálafundi þann 22 nóvember.
 
Fv. Hafsteinn Gunnarsson og Kári Þorleifsson