Á Hraunbúðum Dvalarheimili aldraðra hér í Vestmannaeyjum komu félagar úr Helgafelli færandi hendi, en klúbburinn ákvað að gefa heimilinu fullkomið sjúkrarúm af bestu gerð, en þetta er eitt af fleirum rúmum sem klúbburinn hefur gefið Hraunbúðum.
Það var Magnús Jónasson deildarstjóri öldrunarmála sem tók við gjafabréfi því sem rúminu fylgdi úr hendi forseta Helgafells Einari Friðþjófssyni. Magnús þakkaði Helgafelli fyrir þessa höfðinglegu gjöf og fyrir þann hlýhug sem Kiwanisklúbburinn Helgafell hefur ávalt sýnt Hraunbúðum.