Fyrirlestur

Fyrirlestur



Á almennum fundi þann 29 okt síðastliðinn var fyrirlestur hjá okkur Helgafellsfélögum og var það
Helga Kristín Kolbeins framhaldskólakennari sem flutti erindi kvöldsins sem var um embættismannakerfið
í Kína.
Þetta þótti félögum mjög framandi og sköpuðust fjörugar umræður að erindi loknu. Einar Friðþjófsson
forseti Helgafells afhendi Helgu Kristínu smá þakklætisvott frá Helgafellsfélögum í lokin og fékk Helga
gott lof fyrir erindi sitt.