Helgafell afhendir gjöf

Helgafell afhendir gjöf


Þann 13 febrúar s.l afhentu félagar úr Kiwanisklúbbnum Helgafelli Stefáni Valtýssyni sérútbúið rafknúið sjúkrarúm til eignar. Valtýr faðir Stefáns kvað þetta vera mikla byltingu fyrir drenginn.

Það var síðan Kristleifur Guðmundsson forseti Helgafells sem afhendi rúmið ásamt gjafabréfi, og vonum við Helgafellsfélagar að rúmið og eiginleikar þess meigi koma að góðum notum í framtíðinni.