Jólasælgætispökkun

Jólasælgætispökkun


Í kvöld fór fram jólasælgætispökkun hjá okkur Helgafellsfélögum og að venju kom mikil fjöld félaga og barna að þessu verkefni, enda tekur ekki nema rúmlega klukkustund að pakka öllu sælgætinu í öskjurnar, eins og máltækið segir margar hendur vinna létt verk.

Um helgina förum við félagar síðan um bæinn og seljum þessar öskjur okkar og er þetta okkar aðal fjáröflun til góðra verka fyrir samfélagið.

Það eru komnar myndir af pökkuninni á myndasafnið héra á heimasíðunni.