Skreyting á Hraunbúðum

Skreyting á Hraunbúðum


Í kvöld komu félagar í Helgafelli saman að Hraunbúðum Dvalarheimili aldraðara til að koma upp jólaskrauti, en það er áralöng hefð fyrir því að Helgafellsfélagar komi heimilinu í jólabúning.

Tólf karlar mættu í kvöld og þar af einn nýr félagi okkar, og að venju gekk skreytingin vel fyrir sig enda vanir menn á ferð og tekur þetta ekki nema rúma klukkustund. Að loknu vel unnu verki var félögum boðið upp á kaffi og meðlæti.

Myndir frá skreytingu eru komnar inn á myndasafnið.