Félagsmálafundur

Félagsmálafundur


Félagsmálafundur var haldinn s.l fimmtudag og þar var tekinn inn einn nýr félagi, og sá Birgir Sveinsson fráfarandi Svæðisstjóri Sögusvæðis um athöfnina. Þessi nýji félagi okkar heitir Stefán Birgisson

og kemur hann af miklu Kiwanisfólki frá Siglufirði, en faðir Stefáns er Birgir Stefánsson félagi í Kiwanisklúbbnum Skildi á Siglufirði.
Einnig þurfti að munstara Kára Þorleifsson verðandi gjaldkera inn í emætti sitt en Kári var fjarverandi þegar stjórnarskipti fóru fram.
Síðas og ekki síst var Birgi Sveinssyni afhentur starfsbikar Helgafells fyrir vel unnin störf fyrir klúbbinn og Sögusvæði á s.l starfsári, og óskum við Helgafellsfélagar þessum félögum til hamingju.

 
Kári Þorleifsson settur í embætti gjaldkera


Gísli Valtýsson afhendir Birgi starfsbikar Helgafells