Viðurkenning

Viðurkenning


Um s.l helgi fór fram í Kiwanishúsi Eldeyjarmanna í Kópavogi Kiwanisráðstefna og fræðsla og þar voru þrír fulltrúar frá Helgafelli. Ráðstefnan hófst kl 11.00 og þótti hú vel heppnuð í alla staði.

Um kvöldið var síðan hátíðarkvöldverður og stjórnarskipti í umdæminu og þar voru veittar viðurkenningar og komu tvær í hlut okkar klúbbs. Helgafell fékk viðurkenningu fyrirmyndarklúbbs, en þess ber að geta að allir klúbbar í Sögusvæði urðu fyrirmyndarklúbbar undir dyggri forystu okkar manns Birgis Sveinssonar svæðisstjóra Sögusvæðis.
Einnig kom í hlut Helgafells fjölmiðlabikar umdæmissins fyrir góða kynningu á klúbbnum okkar og tók Gísli Valtýsson forseti Helgafells á móti þessum viðurkenningum.