Þrír ættliðir Helgafellsfélaga.

Þrír ættliðir Helgafellsfélaga.


Á fundi sl. fimmtudag mætti Jóhann Guðmundsson á sinn fyrsta fund síðan hann var samþykktur inn í klúbbinn og er því kominn í aðlögum ásamt fimm öðrum ungum mönnum þeim Júlíusi Ingasyni, Guðmundi Óla Sveinssyni, Kristjáni Georgssyni og Kristleifi Magnússyni.

Það sem er merkilegt við klúbbaðild Jóhanns er að hann er þriðji ættliður sem gengur í klúbbinn þar sem faðir hanns Guðmundur Jóhannsson og afi hanns Jóhann Ólafsson eru báðir starfandi félagar í Helgafelli. Síðan eru komnar tvær nýjar umsóknir inn á borð stjórnar, þannig að það þarf ekki að kvarta yfir fjölgun í okkar klúbbi, sem er stór og öflugur fyrir.
Við viljum bjóða þessa nýju félaga velkomna í klúbbinn og Kiwanishreyfinguna og væntum við mikils af þeim í framtíðinni.