Skreyting á Kiwanishúsinu

Skreyting á Kiwanishúsinu


Í kvöld unnu Helgafellsfélagar við það að koma húsinu okkar í jólabúning undir forystu Páls Ágústssonar og skreytingarnefndar, en jólafundur okkar sem haldinn er sameiginlegur með Sinawik er n.k laugardagskvöld.
Frekar var nú dræm mæting hjá okkur en ástæðan gæti verið sú að færa þurfti skreytinguna fram um einn dag frá auglýstri dagskrá vegna mikils undirbúnings fyrir jólafundinn. Að venju lofar mætingin góðu en yfir hundrað manns eru búnir að melda sig, þannig að það stefnir í góðann jólafund í ár eins og ávalt.