
Þorrablótsnefnd
Í Þorrablótsnefnd þetta starfsárið eru eftirfarandi félagar
Ólafur Hreinn Sigurjónsson formaður
Gísli Magnússon
Grímur Þór Gíslason
Stefán Þór Lúðvíksson
Stefán Ólafsson
Einar Friðþjófsson
Halldór Guðbjörnsson
Þorrablótið verður haldið laugardaginn 19 janúar 2008 og er nefndið þegar komin á fullt við undirbúning.
Þorrablót 19. janúar 2007.
Undirbúningur okkar víðfræga þorrablóts er hafinn fyrir nokkru. Fyrsti fundur þorrablótsnefndar var haldinn 22. október og var umfangsmiklu undirbúningsstarfi þar með ýtt úr vör. Það kemur ekki á óvart að síðan höfum við orðið varir við mikinn áhuga á blótinu og vissara fyrir alla sem ætla að mæta að vera tilbúnir til að tryggja sér aðgang, þegar opnað verður fyrir miðapantanir 10. janúar. Nefndin hefur að vissu marki skipt með sér verkum og matarmennirnir í hópnum hafa lagst yfir „matseðilinn" og eru að velta því fyrir sér, að hafa jafnvel einhvern þorramat ! Skemmtilegu nefndarmennirir hafa skipt á sig undirbúningi skemmtilegra skemmtiatriða, svo að allir geti skemmt sér vel. Annars er það starf líklega unnið til einskis því að ég hef talað við mjög marga sem hafa verið á síðustu blótum og enginn virðist muna hver skemmtiatriðin voru, þó eru flestir sammála um að eitthvað hafi verið til skemmtunar. Svo hafa þeir nefndarmenn sem eru með áherslurnar á hreinu, séð til þess að búið er að panta staupin. Einnig er búið að bóka hljómsveit , sem fór þá undireins að styrkja sig í mannskap og æfir nú sem aldrei fyrr, semsagt ein sem getur ekki klikkað.
Svo skulum við bara vona að allir fái sæti. Kveðja ÓHS
There was a fat man from LaHore
The same shape behind as before
They did´nt know where
To offer a chair
So he had to sit down on the floor.