Heimsókn á Hraunbúðir og HSU,

Heimsókn á Hraunbúðir og HSU,


Það er hefðbundin venja hjá okkur Helgafellsmönnum að mæta á Aðfangadagsmorgni í Kiwanishúsið og fara þaðan í heimsók á Dvalar og hjúkrunarheimilið Hraunbúðir og færa heimilisfólki sælgætis öskju að gjöf frá klúbbnum. Þar flytjum við líka jólaguðspjallið og syngjum saman Heims um ból við undirleik félaga okkar Svavars Steingrímssonar. Þetta er mjög hátíðleg stund og eflir jólaskapið hjá 

mönnum og heimilisfólkið sýnir svo mikið þakklæti. Að heimsókn á Hraunbúðir lokinni er haldið á Sjúkrahúsið HSU og þar er sami háttur hafður á, en án söngs.
Að þessu loknu halda menn heim á leið og klára að undirbúa jólin með sýnum nánustu með ljós í hjarta eftir að vera búnir að láta gott af sér leiða á Aðfangadag.

Kiwanisklúbburinn Helgafell óskar öllum nær og fjær Gleðilegra jóla og farsældar á komandi nýju ári og þakkar bæjarbúum fyrir góðar viðtökur og stuðning í gegnum árin.

TS.