Pökkun Jólasælgætis hjá Helgafelli.

Pökkun Jólasælgætis hjá Helgafelli.


Það var líf og fjör í Kiwanishúsinu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi en þá fór verkstæði Jólasveinsins í gang og verkefni dagsins var að pakka jólasælgætinu okkar, en sala þess er ein af aðalfjáröflunum klúbbsins. Mæting í verkið var hreint út sagt frábær og kom mikið af börnum til að rétta okkur hjálparhönd, en þegar svo margar hendur vinna saman þá tekur þetta ekki langann tíma og að sjálfsögðu hefur skipulagið mikið að segja en menn eru orðnir vel sjóaðir í þessu verkefni. Helgafellsfélagar munu síðan ganga í 

hús um helgina og næstu viku til að selja og mun askjan hjá okkur kosta 2.000- krónur sem er gjöf en ekki gjald. Bæjarbúar hafa ávalt tekið vel á móti okkur og veitt Kiwanis góðan stuðning þegar við erum með verkefni í gangi í þágu samfélagsins og barna heimsins og þökkum við sérstaklega fyrir það.

TS.

Myndband má nálgast HÉR

Myndir má nálgast HÉR