Á stjórnarskiptafundi 1.október voru tveir stjórnarmanna fjarverandi og voru þeir því settir í embætti á félagsmálafundir 13 október. Þetta var Rúnar Þór Birgisson sem settur var inn sem féhirðir klúbbsins og Jónatan Guðni Jónsson kjörforseti.
Á þessum fundi voru líka teknir inn tveir nýjir félagar sem báðir eru sjómenn og áttu því ekki heimangegnt þann 1 október. Þessir nýju félagar eru
Ragnar Jóhannsson og Agnar Magnússon. Við bjóðum þessa nýju félaga velkomna í klúbbinn og hreyfinguna og væntum mikils af þeim í framtíðinni. Það var Tómas Sveinsson f.f Svæðisstjóri sem sá um athöfnina með dyggri aðstoð Guðmundar Jóhannssonar.
Rúnar Þór Birgisson féhirðir
Jónatan Guðni kjörforseti
Inntaka nýrra félaga
© Smartmedia 2014