Hjálmadagur Helgafells

Hjálmadagur Helgafells


Afhending reiðhjólahjálma hjá Helgafelli eða Hjálmadagurinn eins og við köllum hann fór fram s.l laugardag í leiðindaveðri, aldrei þessu vant og voru freka fáir sem mættu til að sækja hjálmana, en þeir verða afhentir í skólanum fyrir þau börn sem ekki komust á laugardaginn. Að venju tók Lögreglan og Slysavarnarfélagið Eykyndill þátt í Hjálmadeginum
með okkur og skoðaði Lögreglan hjól barnanna og boðið var uppá reiðhjólaþrautir. Að lokum sáu Helgafellsfélagar um grill fyrir alla, pylsur og gos sem runnu ljúflega niður þrátt fyrir leiðinda veður.
 
Myndir má nálgast HÉR