Guðmundur Karl Helgason 50 ára !

Guðmundur Karl Helgason 50 ára !


Á dögunum varð Karl Helgason félagi okkar í Helgafelli 50 ára, en Kalli eins og hann er ávalt kallaður gekk í klúbbinn 2003 og hefur verið öflugur félagi fyrir klúbbinn. Að venju fékk Kalli fánastöngina góðu á þessum merku tímamótum og var hún afhent á Sælkerafundinum okkar
en þar hefur Kalli ekki látið sig vanta og er einn af kokkunum á þessum fundi. Við óskum Kalla og fjölskyldu til hamingju.