Hof í heimsókn í Eyjum.

Hof í heimsókn í Eyjum.


Við félagar í Helgafelli fengum frábæra heimsókn núna um helgina en félagar okkar frá Kiwanisklúbbnum Hof í Garði voru hér á ferð og kíktu aðeins á okkur. Á föstudagskvöldið voru úrslit í opna Tvistmótinu í snóker í kjallara Kiwanishússins  og kíktu Hofsfélagar aðeins við, en síðan vorum við með móttöku fyrir gestina Hofsfélaga og maka á laugardegninum frá kl 17-19 og áttum við Helgafellsfélagar sem mættu
ánægjulega stund með félögum okkar úr Garðinum. Það er ávalt gaman að fá aðra kúbba í heimsókn til Eyja en það gerist ekki oft, og eins mættum við vera duglegri að heimsækja vini okkar á fastalandinu en vonandi verður þessi heimsók til þess að auka samskipti við aðra klúbba.
En Hofsfélagar takk fyrir heimsóknina og góð kynni.
 
Myndir má nálgast HÉR