Kjörumdæmisstjóri í heimsókn.

Kjörumdæmisstjóri í heimsókn.


Á félagsmálafundi í gærkvöldi fengum við góða heimsókn frá umdæminu en mættur var til okkar Gunnlaugur Gunnlaugsson kjörumdæmisstjóri. Aðal erindi Gunnlaugs var að funda með okkur Helgafellslfélögum til að koma af stað vinnu við Umdæmisþingið 2015 sem haldið verður hér í Vestmannaeyjum.
Fundur með kjörumdæmisstjóra og stjórn Helgafells hófst kl.18.30 og að honum loknum hófst félagsmálafundur
kl 19.30 þar sem Gunnlaugur ávarpaði fundinn og sagði frá stefnu sinni og áherslum á starfsári því sem hann kemur til með að halda um stjórnartaumana.
Þetta var góður fundur og þokkaleg mæting, og þökkum við kjörumdæmisstjóra kærlega fyrir komuna til okkar, og nú verður sest niður við skipulagningu þingsins, en eins og við vitum þá flýgur tíminn frá okkur.