Málverka gjöf.

Málverka gjöf.


Um goslokahelgina var máverkasýning í Kiwanishúsinu þar sem listamennirnir Bjartmar Guðlaugsson og Ragnheiður Georgsdóttir sýndu verk sín eins og áður hefur komið fram, og var sýningin vel heppnuð í alla staði og mættu að minnsta kosti 700 manns í Kiwanishúsið.
Að sýningu lokinni mánudaginn 8 júlí kölluðu listamennirnir forseta klúbbsinns Hafstein Gunnarsson  og formann hússtjórnar Kára Hrafnkelsson til sín í Kiwanishúsið og var tilefnið að afhenda klúbbnum tvö verk fyrir afnot af húsinu, þetta er glæsileg gjöf og þökkum við Bjartmari og Röggu kærlega fyrir.