Jólaskreyting hjá Helgafellsfélögum.

Jólaskreyting hjá Helgafellsfélögum.


Í kvöld komu saman félagar í Helgafelli til jólaskreytingar, og eru ávalt tvö verkefni á dagskrá, það er að koma Kiwanishúsinu okkar í Jólabúning setja upp Jólatré og skreyta húsið hátt og lágt fyrir jólafundinn og aðra liði sem eru á dagskrá yfir jólahátíðina. Síðan og ekki síst mæta félagar á Hraunbúðir dvalarheimili aldraðra.
Mæting var nú fremur dræm en aðeins tólf félagar sáu sér fært að mæta í þetta verkefni, en það er fátt skemmtilegar en að gleðja gamla fólkið á aðventunni og koma heimilinu í jólabúning og gaman að sjá gleði í hverju andliti bæði Kiwanismanna og heimilismanna á Hraunbúðum sem eru okkur ávalt þakklát fyrir þetta verkefni okkar.
 
Myndir frá skreytingu má sjá HÉR