Gáfu Björgunarfélaginu hitamyndavél

Gáfu Björgunarfélaginu hitamyndavél


Nú á dögunum tóku Kiwanisklúbb­urinn Helgafell og Slysavarna­deildin Eykyndill sig saman og styrktu Björgunarfélag Vestmannaeyja til kaupa á hitamyndavél að verðmæti 2,8 m.kr. sem verður sett í björgunarbátinn Þór. Myndavél af þessari tegund kemur sér mjög vel þegar leita þarf að fólki sem fallið hefur í sjóinn og er því mikilvægt að björgunarbátur í sjávarbyggð, eins og Vestmannaeyjar eru, hafi slíkan búnað. Einnig gerir þetta tæki Björgunarfélaginu kleift að sigla með sjúklinga í Landeyjahöfn í myrkri, eitthvað sem var erfitt áður fyrr.
Slysavarnadeildin Ey­kyndill og Kiwanisklúbburinn ­Helgafell eru mjög stolt af því að geta styrkt Björgungarfélag Vestmannaeyja með svo myndarlegum hætti enda vinna félagar í Björgun­arfélaginu mikið og fórnfúst starf til að tryggja öryggi íbúa í Vestmanna­eyjum. Kiwanisklúbburinn ­Helgafell og Slysavarnadeildin Eykyndill hafa það að markmiði að safna fjármunum til að styrkja góð málefni í sinni heimabyggð.
 
Á næstu dögum munu Kiwanismenn ganga í hús og selja hið árlega jólasælgæti Kiwanismanna. Það er von þeirra að vel verði tekið á móti þeim enda rennur ágóði sölunnar óskiptur til góðgerðarmála.
 
www.eyjafrettir.is   greindi frá