Jólaskreyting á Hraunbúðum

Jólaskreyting á Hraunbúðum


Í kvöld komu félagar í Helgafelli saman á Hraunbúðum dvalraheimili aldraðar og var tilgangurinn að koma heimilinu í jólabúning eins og undanfarinn ár eða allt frá stofnun heimilisinns. Þokkaleg mæting var og gaman að sjá nýja og unga félaga taka þátt í þessu í bland við gamla og góða sem eru öllum hnútum kunnugir í skreytingum á Hraunbúðum og vita nákvæmlega hvar hlutirnir eiga að vera. 
Skreytingin tók ekki nema um einn og hálfan tíma og voru það sáttir félagar sem héldu heim eftir góða stundir við þetta ánægulega verkefni okkar.

Myndir má sjá með því að klikka HÉR