Úrslit í Herjólfs-Eimskipamótinu

Úrslit í Herjólfs-Eimskipamótinu


Núna áðan lauk Herjólfs-Eimskipamótinu í snóker með úrslitakvöldi. Leikur um þriðja sætið hófst kl 18.30 og þar áttust við gömlu refirnir Jóhann Ólafsson og Kristján Egilsson. Klukkustund síðar hóst síðan úrslitaleikurinn en í honum áttust við Guðmundur Jóhannsson og Magnús Benónýsson.

Það er skemmst frá því að segja að í leiknum um þriðja sætið sigraði Krisján Egilsson með þremur römmum gegn einum ramma Jóhanns. Dómari í þessum leik var Jóhannes Þ Sigurðsson.
Í úrslitaleiknum fóru leikar eins en þar sigraði Guðmundur Jóhannsson með þremur römmum gegn einum ramma Magnúsar. Dómari í þessum leik var Sigurjón Adólfsson. Sérstök verðlaun voru veitt fyrir hæsta skor og komu þau í hlut Magnúsar.
Tómstundaráð vill koma á framfæri þakklæti til Eimskipa fyrir dyggann stuðning og vegleg verðlaun í þetta mót okkar Helgafellsfélaga.