Skreyting á Hraunbúðum

Skreyting á Hraunbúðum


Í kvöld komu Helgafellsfélagar saman að Hraunbúðum Dvalarheimili aldraðra til þess að færa heimilið í jólabúning eins og ávalt.

Góða mæting var í kvöld og gaman að sjá nýja félaga mæta í þetta verkefni. Skreytingin tekur ekki langan tíma þegar mætingin er svona góð, og þegar skreytingu var lokið settust menn niður og þáðu kaffisopa og með því frá starfsfólki Hraunbúða.
Þetta er fyrsti pósturinn í jólastarfi klúbbsins en mikið er um að vera hjá Helgafellsfélögum þegar líða fer að jólum og næst á dagskránni er pökkun jólasælgætis, sem fer  síðan í sölu um mánaðarmóltin.

Myndir frá skreytingunni má sjá á myndasíðu.