Ós Hornafirði 20 ára

Ós Hornafirði 20 ára


Félagar okkar í Sögusvæði Kiwanisklúbburinn Ós Hornafirði á 20 ára afmæli um þessar mundir en klúbburinn var stofnaður 12 september 1987. Þeir félagar ætla að halda veglegan afmælisfagnað ásamt stjórnarskiptum þann 17 nóvember n.k á Hótel Kirkjubæjarklaustir.

Þeir bjóða öllum sem vilja, að koma og samfagna með sér. Undirbúningur er að sjálfsögðu hafinn af fullum krafti og eru þeir búnir að panta hótelið og er komin dagskrá og verð.

Dagskráin er í grófum dráttum svona:

18:00 Stjórnarskipti
20:00 Borðhald hefst - Veislustjóri síra Baldur Kristjánsson
23:00 Dansleikur
0?:?? Gengið til hvílu

Matseðill kvöldsins er villibráðarhlaðborð veitt og borið fram af matreiðslumeistara hússins.

Verð á þessa stórskemmtun er aðeins kr 9.500- á mann með gistingu í 1 nótt og morgunverði.

Áhugasamir hafi samband við Hauk Sveinbjörnsson í síma 840-1718.