Stofnfélagar heiðraðir

Stofnfélagar heiðraðir


Á afmælisfagnaði Helgafells þann 6 október s.l voru starfandi stofnfélagar í Helgafelli heiðraðir með Gullstjörnu Kiwanishreyfingarinnar.
Stofnfélagarnir sem enn eru starfandi í Helgafelli eru 5 að tölu og áttu tveir þeirra ekki heimagengt á afmælisfagnaðinn, en þeir sem voru heiðraðir voru Ragnar Guðmundsson, Kristján Egilsson og Tryggvið Jónasson, en fjarverandi voru Einar M Erlendsson og Viktor Helgason. Kiwanisklúbburinn Helgafell þakkar þessum félögum fyrir þetta mikla frumkvöðlastarf og vonandi njótum við krafta þeirra um ókomna tíð.