Þriðjudaginn 23. Maí komu félagar úr Helgafelli færandi hendi í Grunnskóla Vestmannaeyja. Færðu þeir öllum nemendum í fyrsta bekk reiðhjóla hjálm til eignar.
Með í för voru félagskonur úr slysavarndeildinni Eykyndli og aðstoðuðu þær við þrautabraut sem var sett upp á lóð skólans. Þá mættu einnig lögreglumenn sem kíktu á hjólin hjá krökkunum og svöruðu spurningum þeirra.
Alls voru afhentir
53 hjálmar í Eyjum, verkefnið er á landsvísu og hefur Eimskip komið myndarlega að þessu með Kiwanis hreyfingunni.
© Smartmedia 2014