Kiwanisklúbburinn Helgafell afhendir göngugrind !

Kiwanisklúbburinn Helgafell afhendir göngugrind !


Um síðastliðin mánaðarmót afhenti Kiwanisklúbburinn Helgafell gjöf til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum. Um er að ræða fullkomna Gate göngugrind að verðmæti 436.846,- kr. 

Göngugrind þessi er mjög þægileg í meðförum að sögn Örnu Huldar Sigurðardóttur, deildarstjóra á sjúkradeild HSU, en

 þar hefur grindin verið í notkun í nokkrar vikur og hefur nú þegar sannað gildi sitt. 

Arna Huld vildi fyrir hönd sjúkrahússins koma á framfæri kæru þakklæti til Kiwanismanna fyrir þessa veglegu gjöf.